Prófíll

  • Nafn: Íris Arnardóttir
  • Stađur: RVK
  • Kyn: kvk
  • Atvinna: Verslunardama
  • Hjúskaparstađa: á Pikkföstu
  • Um mig: 19 ára stúlkukind úr breiđholltinu - Er á föstu međ heavy sćtum strák honum Hirti Helga... Ég á frábćran vinkonuhóp og ćđislega fjölskyldu. Ég er í Borgarholtskóla og klára líklegast í vor. =D
  • Annađ: Túbbíteieieieiei !

Auglýsing

Atburđarteljari

Könnun

Nightmare before Christmas eđa Breakfast Club

Innskráningar kubbur

jól

20. desember 2007 klukkan 08:20
Stundum þá gleymir maður sér alveg í gleðinni skal ég ykkur segja ;)
Ég er bara búin að vera að læra undir próf núna í desember, fór í 7 próf þakka ykkur fyrir ;)
EN ég er búin að fá einkunnirnar mínar og ég náði öllu - =)
Ég gæti ekki verið sáttari - Ég er að fara að útskrifast núna næstu önn . . .
GEGGJAÐ =)

Það er nú meira hvað maður stækkar fljótt allt í einu - USS .......
En svo er það sjúkraþjálfunar prófið núna í júní  - Vonum það besta, annars tek ég mér ársfrí til að vinna og svona, sabbna mér penge =)

4 dagar og 15 klukkutímar í jólin ;)
Ég er búin að:

* Kaupa allar jólagjafirnar
* Pakka þeim öllum voða fínt inn
* Láta næstum alla fá sína pakka
* Skreyta heima hjá mér
* Skreyta heima hjá Hirti
* Þrífa - bæði hjá mér og Hirti

Núna er ég bara að vinna eins og mófó og svo erum við að fara og velja jólatré í kvöld ÍKKKK og skreytum það svo á morgun um kvöldið :)
ÆÐI - Allt í einu áðan skall á mig risastór jólafýlingur =D
Ég er bara í voða hlökkkunarfýling -

Ég er með áberandi sár á andlitinu mínu - það er eins og ég hafi verið húðflett - o jæja og mín að fara að vinna þannig núna klukkan 9 - 4
Stuttar vaktir í dag og á morgun ;)


Váh ég er bara að bulla eitthvað - ekkert til að segja =)
ÞAÐ ER AÐ KOMA JÓL =)
Íhhk-

jæja farin að stara á hetju =)
Voffinn hans Hjartar - hún er OF sæt :D
Myndir á www.blog.central.is/sugerpillows



OMG

12. nóvember 2007 klukkan 18:10
HVAÐ ER AÐ GERAST !!!!
Status update ...


Bold and the beautiful -!
Smá svona hvað er að gerast, fyrir fólk sem er dottið út úr þáttunum

* Taylor & Rich eru skilin
* Rich er ástfanginn af Brooke
* Hann bað Brooke að giftast sér
* Hún sagði nei - OMG
* Hún vill víst ekkert með hann að hafa
* En hún er hrifinn af Nick
* En Nick er giftur dóttur hennar Bridget
* En Nick er samt svaka skotin í Brooke
* Nick og Bridget áttu von á barni
* En barnið dó við fæðingu
* Taylor er svaka mikið að drekka áfengi núna
* Hún er mikið ap hözzla Victor =)

Neighbours
Smá svona hvað er að gerast, fyrir fólk sem er dottið út úr þáttunum =)

* OMG
* Max er kominn aftur
* Toadie er reiður út í Steph því hún vildi Max í stað hans
* Toadie varð fyrir byssuskoti
* Rosetta stal 200.000 frá pabba sínum og systur
* Boyd og Janae gift en Boyd hélt framhjá með vinkonu elle
* Vinkona Elle er að koma að hitta Elle og Boyd
* Paul og Lyn giftu sig en hann hætti með henni sama dag
* Lolly dóttir Lou er stelisjúk og brjálaður banani
* Max lendir líklegast í fangelsi fyrir manndráp
* AHHH það er er svo mikið drama spama nenni ekki að segja meir





JÆJA - TÖFF PÖFF

haha -

06. nóvember 2007 klukkan 17:53
Haha Ég trúi ekki því sem ég er að fara að segja !

ÉG er MJÖG spennt að sjá næsta Bold And The Beautiful þátt ! Brosandi

Búin að vera að vesenast eitthvað í dag að kaupa aukahluti handa gamla bílnum mínum er að pimpann upp - -

Held það nú . . .

Er að fara að vinna í kvöld - starfsmanna útsla í hagkaup tonight beibí -
Verð að vinna - Þetta verður ábyggilega martröð =/
Er ekki of spennt - þessi kvöld eru verri en jólaösin skal ég ykkur segja !
Uss puss -

Jæja ég fæ péning er það ekki =)
Held það nú !

Btw. Neighbours er að byrja - Ég er mega spennt yfir þeim líka haha...!
ÚFF - svaka gaman þar á bæ -

Jájá styttst í jólin -
ÉG ER SVO SPENNT !=)

Sjáumst !

Húbbí Húbbí =)

02. nóvember 2007 klukkan 13:53
Gíng Gang Gúlli Gúlli Gúlli Gúlli
Vask Vask Ging Gang Gúú
Ging Gang Gúú
Gíng Gang Gúlli Gúlli Gúlli Gúlli
Vask Vask Ging Gang Gúú
Ging Gang Gúú
Heila Ó Heila Seila
Ó Heila Seila Seila ÚÚÚ -


Hahaha steikt lag . . . .


Anyway - Hæ fólk -
Langt síðan ég hef bloggað - búið að vera mjög mikið að gera hjá mér í skólanum.
Ekkert svakalega mikið fjör =/ Próf, fyrirlestur, munnleg próf, videp verkefni og fullt einhverjum hryllingi !!!

Jæja 2.Nóvember sem þýðir það að prófin nálgast !
Það styttist líka í að Magga verði 19 ára og að jólin fara að nálgast !
Svaka fjör ;)

Ég held ég verði að blogga aftur seinna um helgina - ég er að missa mig hérna yfir Knocked Up :) Heavy góð mynd -
Var að downloada henni og einnig líka Nightmare before Christmas svo það er stuð hjá mér ;)

er farin -



Tannlćknir og fjör !

22. október 2007 klukkan 10:55
Jæja - Ég fór til Tannlæknis að láta kikja á kjálkann minn og hann sagði að hann væri frekar spez og að kjálkinn færi úr mótinu sínu og eitthavð fatlað..
Þannig ég er að fara til kjálkasérfræðings núna á föstudaginn og ég veit ekki hvað í ansk. ég er að pæla að fara þá því ég þarf að skrópa á föstudaginn í skólann =/
Vonda pakk..... =/

En já ég er í svo miklu stuði því það er að koma jól -
En aftur á móti er ég glorhungruð og er að svelta meira en ég veit ekki hvað og er að drepast í maganum !

Mig dreymdi skrítinn draum -
Ég vil pönnukökur !

ég hef ekkert að segja -
kíkið á sykurpúða síðuna....

Kem með betra blogg í dag því ég er að vera battólós í tölvunni

Bæj -

...

19. október 2007 klukkan 11:58
Ég veit ég veit... Ég er rosaleg Hlæjandi

Er í ensku 303 svaka partý hér á bæ...
Ég gleymdi öllum bókunum mínum heima í dag -
Ég var/er bókalaus í skólanum - svaka partý !

Svo núna klukkan tvö er ég að fara til tannlæknis Óákveðinn
Ekkert of spennt hér á bæ...
Hann ætlar að kanna kjálkana mína ...
Þeir eru gallaðir hjá mér líklegast -
Hjörtur sagði að ég þyrfti ábyggilega að fá svona hallærislega kjálkaklemmu eins og í charlie and the chocolate factory.



NEI ÉG VIL ALDREI FÁ SVONA !!!!
HAHAHA !!
HANN SKAL EKKI LÁTA MIG FÁ SVONA !!!!

Anyway - stuðið -
Mig langar heim að borða !=/
Ég er svooooo svöng og mig langar í nammi =)
Awwwww -

Ég þarf að hætta þessu nammi standi !

En hey ég veit ekkert hvað skal segja svo ég er bara tæm át ;)
bless

Hairspray

18. október 2007 klukkan 11:41
Glænýtt blogg hér fyrir neðan fólk -
En þetta er þó ennþá nýrra !

Ég D-Ý-R-K-A
HAIRSPRAY !!!!

Ég Downloadaði Hairspray löglega á netinu
Og ég gæti ekki verið hamingjusamari ;)
Ég er búin að horfa á hana 3x síðan í lódaði henni og ég er ekki búin að fá leið á henni ;) Wúhú...
Hún er samt best í stóraskjánum í bíóhúsinu !:D
Íhí...

Er í skólanum - í náttúrufræði núna -
Ég fýla ekki náttúrufræði því netið er svo lélegt hér =/

Ég er að fara í próf á morgun og ég er að fara að vinna eftir skóla svo ég veit ekki hvað ég á að mér að gera !:( Þarf kannski að hringja mig inn og segja að ég komist ekki vegna lærdóms =/
Þær verða allavena alls ekki hressar með það !

Ætla mér líklegast að hætta á fimmtudögum - verð að fá betri laun eða skemmtilegri vinnu ;) haha
Það er nú ekki á hverju strái ....:)


En já..... Hvað er að brallast hérna ?
Vinna um helgina og sonna... !

Valdís litla systir Hjartar á ammæli í dag skvísan orðin 18 ára og við bæði staurblönk og læti. . . Greyið hún fær engan pakka frá okkur fyrr en um mánaðarmótin ;)

Svo er hún Bylgja hvolpur 6 ára núna 26. Okt !;) Hún er svo mikið megabeip!
Svo er það hún Margrét 27.Nóv - uss allt að gerast !...

Ég hef ekkert að segja hér -
Æla að fylgjast með í náttúrúfræði !
Tjá................

Uss heilir 4 dagar !

17. október 2007 klukkan 12:01
Já það eru alveg heilir 4 dagar síðan ég bloggaði seinast !
Þvílík hamingja og krúttlegheit Hlæjandi
Hvað er að frétta af mér ?
Voða lítið

* Ég er svöng
* Mikið að læra
* Vinna á fimmtudaginn
* Vinna um helgina
* Þreytt -

Þetta er semsagt það sem er í gangi !
Mikið ekki satt?
Jújú satt er það....

Ég lærði og lærði og lærði undir próf í gær sem var svo ekki í dag.
Því var frestað fyrir heilbrigðiskönnun ...
Svaka fjör... mikið svarað ,,hef aldrei" þarna í þessu fjöri !

Ég anga eins og saltfiskur -
Mamma var með saltfisk og hann festist í úlpunni minni .
Ég reyndi að úfa á mig ylmvatni út um allt en það er enn saltfisklykt.
Nú er ég með Ilmvatn + Saltfisk Ullandi
Gæti ekki verið betra !

Mín er á botni gjaldþrota !
Vitleysingurinn ég ...
Það er allt í lagi - það er ekki nema svona c.a. vika og 4 dagar í útborgun ...
Thjúh Thjúh ... :)

Ég var að spá í að finna mér nýja vinnu...
Gamla vinnan er ekki lengur eins skemmtileg og mér fannst...
Engir krakkar næstum lengur - núna bara gamlar konur haha æjj..
Eina sem mér finnst skemmtilegt að gera er að sokkabuxast!
Mér finnst hún heldur ekki vera ða borga mér nógu vel !
Kannski ég ætti að biðja um launahækkun -
Njééé stórefast um að þau vilja gera það fyrir mig ....
Sjáum til ..

Ætla allavena að hafa augun mín opin ...................

Skólinn hann er hress og skemmtilegur
Það eru nákvæmlega 32 skóladagar eftir að skólanum
Svo koma prófin
Ég tek 6 eða 7 próf =/
Alltaf sama partý stemmningin í mér !
Ussss...
Ég er að vonast eftir að sleppa ensku og stærðfræði !
Það yrði gaman :)

Annars er svo að styttast í jólin - Hlæjandi

Ég er svo spennt - ég get ekki beðið íhí ...

Spá í að fara að búa til jólalistann áður en mútta og pápi skreppa til Germani =Þ
Já auddað þýskaland =D

Mamma sagði að þegar ég yrði stór getum við tvær farið í verslunarferð til Miniapolis. Ég spurði hvenær ég yðir nógu stór og hún sagði að kannski á næsta ári ef ég stækkaði hratt í vetur.. Hlæjandi

Ég vil það .. Ég hef aldrei farið til Bandaríkjana áður Hlæjandi

Þá mun ég kaupa mikið mikið mikið mikið mikið ...


Anyway - commentið - látið vita af ykkur :D
Tjá...




Morđóđ dýr !

13. október 2007 klukkan 17:43
Ég er búin að baka wúhú ;)

Mín bakaði eina Djöflatertu  - eina gulrótaköku og súkkulaði möffins...
Svo koma stelpurnar með ennþá meira... !!
En spennandi ..  =D

Dagurinn var fínn - Gerði svosem ekkert. . .
Fór með Hirti í Ingvar Helgason og skoðuðum nýju Imprezuna... !
Mér finnst hún sæt og stelpuleg haha!
Hjörtur var svo hneykslaður og sagði bílinn grútljótann =Þ
Fórum og versluðum Gos og fleiri kósýheit fyrir kökuboðið !
Fórum svo í tvær dýrabúðir og skoðuðum dýr!
Sáum eina mega sæta kanínu og einn mega sætann fugl með hanakamb...
Það er gaman að skoða í dýrabúðir....
Sáum hákarla og Pirana fiska .. Hirti langaði rosa í svoleiðis !!!!
Ég hef ekkert svakalegan áhuga á því að eiga morðóð dýr í búri heima hjá mér !
Svo sáum við skrítnustu hænu í heimi !!! =/
Greyið - hún var ljót - Hún var líka morðóð, hlóp út um allt og sagði morðorð !
Sáum líka mús sem virtist vera sæt en var svo með brotið skott og ónýt augu og hljót á músa ungana og beit þá ! Hún var ábyggilega með músaræðið !!!!
Ég var hrædd, þá vildi ég fara heim !

Svo fór ég heim að baka og er búin að baka síðan....!
Dugnaðurinn í einni dömu ;)

Svo er það MAGET STOR ritgerð sem ég þarf að gera á morgun!!!
USss.... Fýlaða ei ...!

En ég er farin -
Kveð að sinni

The New Girl In Town . . .

11. október 2007 klukkan 18:10
Hæ - Bloggóða Íris er mætt aftur á svæðið.

Ahhh Fyrsti dagur vetrafríjsins var í dag :)
Kósý... Glottandi
Lúrði til 10 í kósýheitunum og skutlaði Hirti Helga í vinnuna og fór heim og klappaði hundinum mínum 25 sinnum... Fór svo í tölvuna, skrifaði disk og skutlaði Berglindi og Karítas í Curves og sótti svo Beggu aftur og við fórum að passa hjá Systu... Svanhvít er svo mega sæt að það hálfa væri helmingur í poka ..!
Svaka spjallari - Hlæjandi


En já svo er það kringlan á eftir !
Og kósý kvöld... =D
Anyway -

á morgun ætla ég að stara á vegg !
Hinn ætla ég að stara á vegg baka og hafa bökunarveislu
Þannhinn ætla ég að stara á fleiri veggi og svona ;)

En ég er farin .....

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Leit